
Frá laxasumrinu mikla. Verður það ,,stórasta" laxasumar frá því skráning hófst?
Þegar halla tekur sumri er ljóst að laxveiðiárið 2008 verður með þeim allra bestu. Gjörólíkt liðnu ári því nú gengu smálaxar eftir eins árs dvöl í hafi tiltölulega snemma, og fyrir norðan og austan þar sem stórlax vegur þungt gekk mun betur en mörg undanfarin ár. Það er helst að smálaxinn á norðausturhorninu hafi ekki náð styrk til samræmis. Við gætum því átt í vændum uppgjör um besta laxveiðiár frá því að skráning hófst, en þó ber að slá nokkra varnagla:
Eins og Veiðimálastofnun bendir á kemur þetta til: ,,Hluti af þessari góðu veiði er samt tengd því að nú er farið að sleppa veiddum löxum aftur lifandi í árnar í verulegum mæli. Hluti þeirra veiðist aftur og hækkar veiðitöluna þó laxgengdin sé sú sama. Einnig hafa hafbeit/gönguseiðasleppingar til stangveiði verið tíðkaðar í nokkrum ám síðustu árin og hækkar það heildarveiðina á landinu öllu. Samanburð á veiðitölum frá fyrri tíð við veiðitölur í dag þarf því að gera með það í huga" (www.veidimal.is)
Það er deginum ljósara að samanburður Eystri og Ytri Rangár, þar sem veiðin byggir alveg á sleppingum seiða, við algjörlega sjálfbærar ár kemur ekki til greina. Þá verður að setja inn í heildarsamhengið hversu víðtækar seiðasleppingar eru að baki nú í samanburði við fyrri ár. Uppgjörið er því mun flóknara núna en oftast áður hvað sem líður lokatölunni.