25.9.2008
700 laxa vika í Ytri Rangá
Ytri Rangá bætir sig enn og nú um 700 laxa í vikunni en sem von er hægist mjög annars staðar, enda víðast verið að loka. Heildarveiðin í Ytri Rangá er nú 12.200 laxar og rúmlega það. Röð yfir aflahæstu ár breytist ekki, Eystri Rangá kemur næst með 7467, Norðurá með 3300 og Langá hangir nú í 3000 löxum og þar er enn veitt. Þverá og Kjarrá eru með rúmlega 2800 og Grímsá 2200. Selá og Haffjarðará eru báðar komnar yfir 2000 laxa múrinn, allt eru þetta stórkostlega veiðitölur.
Samkvæmt www.angling.is bætti Eystri Rangá við sig 300 löxum í vikunni, og Selá nær 200 sem og Laxá í Dölum sem var með rúmlega 200 laxa í vikunni. Annars staðar var verið að reita 100-200 laxa þar sem best gekk en það er nú ekki slakt á haustlægðatíma.
Eins og við höfum áður rakið er veiðin aflmennt afbragðsgóð á S-Vesturlandi en síðri á Norður- og Austurlandi, þótt þar hafi víða verið bætt í miðað við fyrra ár, en þó ekki alls staðar.