Við skýrðum frá því í gær að hreinsunarmenn við Hlíðarvatn hefðu lítið veitt um síðustu helgi, fyrir utan Jóhönnu Benediktsdóttur, fyrrverandi formann, sem fékk 57 sm bleikju við Mosatanga.
Þessi frétt reyndist ekki allskostar rétt því á vef Ármanna má lesa að þeir hafi fengið a.m.k. 22 bleikjur í Skollapollum og víðar og eflaust hafa hin félögin við vatnið einnig veitt álíka vel. Ef satt reynist þá er þessi afli Ármanna með því betra sem gerst hefur í hreinsunum á síðustu árum.
Stuttlega var fjallað um málið á Facebook síðunni okkar í fyrradag en í fréttinni á heimasíðu Ármanna segir meðal annars:
Hreinsunarhelginni í Hlíðarvatni er nú lokið. Talsvert fannst af rusli og eitthvað af fallegum bleikjum líka. Fyrrverandi formaður Ármanna, Jóhanna Benediktsdóttir, gerði sér lítið fyrir og krækti í 57 sm gullfallegan fisk hjá Mosatanga. Sá tók litla neongræna pöddu sem Stefán Hjaltested hnýtti af sinni alkunnu snilld.
Veiðimenn fengu að kasta að lokinni hreinsun og fyrir utan fisk Jóhönnu, fengust nokkrir í Skollapollum. Fregnir herma að Ármenn hafi landað a.m.k. 22 bleikjum sem telst afar mikið á þessum árstíma.
Veiðin í Hlíðarvatni hefst með formlegum hætti 1. maí og verður spennandi að sjá hvort fleiri stórfiskar gefa sig til fyrstu dagana og áfram í sumar. Laus leyfi í Hlíðarvatni eru til sölu á www.leyfi.is.