28.8.2009
30.000 fiska sumar í Veiðivötnum!
Veiðivötnin blómstra í ár
Eins og flugur.is hafa skilmerkilega fjallað um er eitt stærsta veiðiævintýri landsins sumarið 2009 í Veiðivötnum. Aflinn er nær 30.000 stangarveiddir fiskar og meðalþyngdin betri en oft áður. Gamla metið frá síðasta ári var bætt um 5000 fiska. Og allt þetta á aðeins 2 mánuðum. Stangarfjöldi er auðvitað mikill, um sex þúsund stangardagar, svo meðaltalið er fimm fiskar á stangardag. Eitt vatn, Litlisjór, hlýtur að vera mesta aflavatn Íslands: Tíu þúsund urriðar! Og margir afburða vænir. Stærsti fiskurinn var sá 14.4 punda sem við sögðum frá áður.
Nánari fregnir má fá á www. veidivotn.is þar sem segir: Að þessu sinni veiddust 29524 fiskar á stangveiðitímanum 19. júní til 19. ágúst... Meðalþyngd fiska var einnig umtalsvert hærri nú en í fyrra, 1.63 pd nú en 1.44 pd í fyrra...Langmest veiddist í Litlasjó en þar komu 10400 urriðar á land sem er mikil aukning frá fyrri árum. Meðalþyngdin þar var einnig mjög góð eða 2,25 pd. Vel veiddist einnig í Langavatni, Nýjavatn, Kvíslavatni og Eskivatni en þar var uppistaðan í aflanum smábleikja. Hraunvötn, Grænavatn, Snjóölduvatn og Stóra Fossvatn gáfu mjög góða veiði, en þar er veiðin urriði, nema í Snjóölduvatni þar sem einnig er bleikja.