27.9.2009
Veitt ÚR klaki!
Væna flís af feitum laxi - nema varla hefur hann verið matarlegur í klakkistu í september?
Stangaveiðifélagið Flúðir segir sínar farir ekki sléttar, því óprúttinn veiðimaður tók sig til og slátraði eldislöxum sem geymdir voru í klakkistu við Fnjóská. Merkilegur veiðiskapur það. Á vef Flúða segir svo frá: Fyrir nokkrum dögum urðum við fyrir fólskulegri árás,,veiðimanns? sem sá sóma sinn í því að opna eina af klak-kistum okkar við Fnjóská, taka þar úr a.m.k. fimm stóra laxa og slátra þeim. Blóðugur vígvöllur
og ástandið á kistunni þegar að var komið bar þessarri hetjudáð miður fagurt vitni.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hugarheim þessa vesalings manns, en væntanlega mun hann í góðra vina hópi geta stært sig af ,,veiðinni?.
Fyrir okkur er þetta hins vegar töluvert áfall og fjárhagslegt tjón þar sem þarna fór stór hluti þeirra fiska sem nota átti til undaneldis og ólíklegt er að svo síðla hausts takist að ná í aðra fiska í staðinn."