
Óskar Páll Sveinsson er nýr pistlahöfundur á flugur.is. Nú hefur göngu sína hnýtingaþáttaröð hans og byrjunin ekki amaleg; Black and Blue á sparifötunum er komin á vefinn. Kennt er að hnýta hana skref fyrir skref með fallegum og greinargóðum myndum og skýringum Óskars Páls. Glæsileg fluga verður í boxum fjölmargra lesenda okkar í vor! Fleiri pistlar Óskars Páls eru væntanlegir á næstunni og eru þeir allir gjaldfrjálsir fyrir netklúbbsfélaga og áskrifendur Flugufrétta. Einnig bætist okkur annar liðsauki þegar vorfiðringurinn fer um menn: Sá pistlahöfundur hefur hvorki meira né minna en 77 ára veiðireynslu! Rafn Hafnfjörð skrifar hugleiðingar
og gefur heilræði í spjallþáttum sínum sem nú hefja göngu sína. Þeir eru báðir boðnir hjartanlega velkomnir í fjölskrúðuga pistlahöfundasveit flugur.is

Fyrsti pistill Rafns er kominn á vefinn og fleiri bætast við á næstunni.
Fleiri fréttir af vefnum eru þær að nú standa yfir miklar lagfæringar á kerfisbúnaði sem ekki er vanþörf á og verður vefurinn mun sprækari og þægilegri innan fárra vikna. Þá eru önnur nýmæli í undirbúningi, en hæst ber auðvitað vinningasöfnun í áskrifendahappdrætti Flugufrétta sem verður í vor að venju.
Já,
ég vil gerast áskrifandi að Flugufréttum og ganga í netklúbbinn með öllum þeim hlunnindum sem fylgja!

Smelltu hér til að skrá þig.
Þeir sem ganga í netkúbbinn njóta hlunninda.
- Áskrift að Flugufréttum fyrir aðeins 125 kr. á viku.
- Allar greinar á vefnum ókeypis
- Leitarvélin á vefnum ókeypis, opnar þér aðgang að stærsta gagnabanka á Íslandi um fluguveiðar, aðeins fyrir áskrifendur.
- Sjálfkrafa þátttaka í áskrifendahappdrætti Flugufrétta í vor, margvíslegir vinningar í boði.
- Aðgangur að nærri 600 tölublöðum af Flugufréttum allt frá árinu 2000!