
Litlá þegar veiði hófst. Bein sending frá bakkanum. Ansi kuldalegt.
Maður veit aldrei hverju á að trúa þegar veiðimenn eru annars vegar en svarið ,,svona 80 fiskar" kom norðan frá Litlá í Öxarfirði eftir fyrsta dag. Stærsti var 65 sm og menn þar nyrðra telja sig hafa lent í ,,bestu opnuninni" enda skilyrði fín. Mikið af afla fyrsta dags var bleikja og fiskur lang mest á efstu svæðum sem veiðimenn töldu galla á gjöf Njarðar, betri dreifing hefði gert þetta skemmtilegra. Það var kuldalegt hvarvetna við veiðar, í Varmá var daufar en vant er og ekki mikið að gerast í Tungufljóti samkvæmt fréttum. Geirlandsáin gaf um tíma samkvæmt www. votnogveidi.is en hvergi neinar stórar aflasögur í dag. Í Morgunblaðinu
segir að 18 pundari hafi fengist á Black Ghost í Opinu í Tungulæk. Þar kemur líka fram að Vatnamótin hafi farið vel af stað þrátt fyrir mikið vatn. Í Soginu byrjaði vel með miklu af sjóbiirtingi, og sem von var nokkuð af hoplaxi samkvæmt www.svfr.is En það er ekki aðalatriðið hve þetta er gloppótt, vertíðin er byrjuð! Til hamingju með það!