
Gunnlaugur Sigurðsson (79) dró sinn fyrsta lax í boði borgarstjóra þegar Elliðaárnar voru opnaðar. Þessi vinalegi Breiðhyltingur var lítillætið uppmálað þegar hann öðlaðist þær fimmtán mínútur af frægð sem Andy Warhol lofaði hverjum manni. Reyndar næstum 50 mínútur því þá hafði hann (með aðstoð Ásgeirs Heiðars) sett í sama laxinn tvisvar, fyrst misst og síðan rotað. Maríulaxinn komst í heimsfréttir og heimildaþætti meðan borgarstjórinn spígsporaði á jakka og blankskóm og hélt við stöngina meðan þeir Ásgeir og Gunnlaugur tóku laxinn á land. Fréttamenn vildu vita hvers vegna Gunnlaugur hafði verið valinn ,,Reykvíkingur ársins? og þar með fengið þetta fína veiðileyfi. Hann skildi ekkert í því. ,,Var bara ein tilnefning?? Lóa Aldísardóttir fréttakona las langan lista af góðverkum sem Gunnlaugur á að hafa framið, dyttað að húseign og fleira gott, ,,...gera þetta ekki allir?? spurði gamli.

Fiskurinn úr Sjávarfossi var sá fyrsti á ferlinum, áður dró hann ufsa og þorska. Var alveg hissa á hve þetta var auðvelt. ,,Hann er ekki greindur laxinn? sagði Gunnlaugur. Það er ekki von að hann viti að maðurinn sem stýrði stönginni með honum er einn skæðasti andstæðingur laxa sem um getur. Þegar Ásgeir Heiðar er annars vegar er erfitt laxalífið. Ásgeir tróð svo maðkinum upp í næsta fisk - á Breiðunni fyrir Dag Eggertsson. Borgarstjóri baðaði sig í ljóma fjölmiðlanna og það gerði Gunnlaugur líka:
