Veiðimenn eru sammála um að laxinn sé miklu fáliðaðri þessar vikurnar en á sama tíma undanfarin ár. ,,Slangur" af laxi sagði þaulvanur leiðsögumaður í spjalli við okkur í gærkvöld, þá staddur í Borgarfirði, og bætti við: ,,Miklu nær því að vera eðlilegt ár núna en metárin í fyrra og hitteðfyrra, menn er bara búnir að gleyma hvernig þetta er venjulega". Dr. Jónar á www.frances.is var að koma úr Langá þar sem ekki var mikið af laxi eins og við höfum áður sagt, en hann sendir veiðimönnum heilræði við þessar aðstæður, þegar virkilega þarf að hafa fyrir því að leita að laxinum. Hann notaðist við Sun Ray Shadow gárubúbu, sýnd að ofan, og telur hana
besta til að finna fisk: ,,Þessi túpa er afar sterk í allri vorveiði og allt sumarið. Það sem gerir þessa flugu svo sérstaka er að hún leitar svo vel af fiski í fiskleysi. Maður þarf varla aðra flugu í veiði þegar leitað er að fiski í fiskleysi. Hún gárar alltaf svo vel og ef fiskur er til staðar rýkur hann oftar en ekki í hana. Oft er það þannig að ef hann snertir túpuna og missir hana en þá kemur hann ekki aftur. Ef hann snertir ekki á hann til að koma oft á eftir henni áður en hann tekur. Einnig veiddum við vel á Frances tungsten keilur, Sunray Shadow tungsten keilur helst þá bláu". Hér eru greinar um gárubragðið fyrir þá sem vilja reyna:
1) Gárubragð fyrir fávísa
2) Grein um leyndardóma gárubragðsins.
3) Skemmri skírn: Gárubragð
4) Ítargrein um gárubragðið: sterkasta vopnið
5) Kynning á gárubragði
6) Grein fyrir byrjendur
7) Hvað er ,,hits?