2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
28.4.2016

Eyjafjarðará, Þingvellir, Blanda og fleira

Er veiðin í Eyjafjarðará að snúast aftur við bleikjunni í hag? Erlendur Steinar segir ýmislegt benda til að svo sé og ætlar að hætta öllu fiskastússi og fara bara að bera út blöðin ef ekki veiðast a.m.k. 750 bleikjur í ánni þetta sumarið. Við segjum af veiðiferð í Eyjafjarðará þar sem veiddust allt upp í 70 sm urriðar, staðan á Þingvöllum er einnig skoðuð, kíkt á vatnaveiði á Snæfellsnesi og farið í vorveiði í Blöndu þar sem botninn er hreinlega teppalagður af niðurgöngulaxi. Þetta og alls konar fleira í Flugufréttum vikunnar. Á myndinni er Niklas Högstedt með 62ja sm niðurgöngubleikju sem hann fékk í Eyjafjarðará á dögunum.

 

5.8.2016

Mokveiði