Var sett íslandsmet í laxveiði í gær? Flugufréttir segja frá svakalegri opnun í Ytri-Rangá. Við kíkjum líka á Langá, Blöndu, Veiðivötn, Arnarvatnsheiði og fleira.
Við kynnum einnig vinningshafa í afmælishappdrætti Flugufrétta og bókaforlagsins Sölku þar sem 10 vinir okkar unnu eintak af bókinni um Víðidalsá og Fitjá eftir Karl G. Friðriksson og Sigríði P. Friðriksdóttur.
Fimm áskrifendur Flugufrétta voru dregnir út og fá bókina frá okkur. Þeir heppnu eru:
Andrés Hjaltason,
Ástráður Magnússon,
Jóhann Haukur Sigurðsson,
Margeir Stefánsson og
Sigurður Rúnar Ragnarsson.
Við létum ekki þar við sitja heldur fá fimm vinir okkar á Facebook einnig bók frá okkur, þeir eru:
Ólafur Óskar Jónsson,
Árni Guðbjörnsson,
Rúnar Ásgeirsson,
Ragnheiður Helgadóttir og
Reynir M Sigmunds.
Þessir ljónheppnu vinir geta sótt bókina til Sölku á Suðurlandsbraut 4, annarri hæð en þar er opið á milli klukkan 13.00 og 16.00.