2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
6.7.2013

Ofurlax

Það var auðvitað mikil óheppni hjá Ásgeiri Heiðari að ná ekki að setja í aðra önd á Nesveiðum í Aðaldal (sjá Flugufréttir föstudag)  því allir vita að söngur villiandarinnar er fagur og hún góð til matar ef vill.  En í staðinn varð hann að láta sér lynda þennan lax sem tók fluguna hans og er lang stærsti lax sem lengi hefur sést upp úr íslenskri á, 115 sm og nálgast 30 pundin ískyggilega (sumir segja rúmlega 30 upp á nokkur grömm).  ,,Þú hefðir nú getað brosað" sagði einhver á Fésbók en andarlaus maður er alvarlegur í bragði. Til hamingju Ásgeir Heiðar, þó það sé bara stórlax.  

Venjulegt viðfangsefni!

 Þetta var nú bara venjulegt viðfangsefni segir Ásgeir Heiðar í samtali við flugur.is um baráttuna við fiskinn.  Staddur í Árnesi, veiðihúsinu, eftir góðan dag  ,,Ég fór úr veiðihúsi kl. 6.30 og vissi sem var að langleggja spóaungar voru að þvælast fyrir í slóðanum upp í Grástraum.  Þar hafði veiðimaðurinn ekki tilfinningu fyrir að mikið væri af löxum í ánni svo hann æfði spayköst í neðri Grástraum um hríð og bjó til listilega hnúta á tauminn eins og hann sagði áður en haldið var niður að Vitaðsgjafa sem þar sem hann átti stefnumót við Jafet Ólafssson til að læra af honum um staðina.  

,,Ég hef aldrei veitt hérna áður sjálfur" segir Ásgeir Heiðar, en sagt mönnum til um svæðið nokkrum sinnum.  Einhverja tilfinningu hafði hann fyrir Hornflúðinni sem er skammt ofan Vitaðsgjafa og nú mun þeim sem þar hafa komið finnast áhugavert að þeir fóru yfir á bakkann öndvert til að kasta.  ,,Fá svona annað kasthorn" segir Ásgeir Heiðar.

Dauðarekið

,,Takan var þung og ákveðin" segir veiðimaðurinn sem var vopnaður Sage einhendu og með kvarttommu svarta frances undir.  ,,Lét hana reka dead drift" segir hann.  ,,Ég sagði þetta eru 12-14 pund".  Skömmu síðar hafði talan hækkað í 16-17 pund í áætlunum þeirra félaga en þá stökk hrygnan og enn hækkaði áætlunarvigtin.  Ásgeir Heiðar hefur tekið nokkra 20 pundara og yfir og í Kanada á hann rúm þrjátíu pund skráð svo hann er ekki ókunnur stórlöxum.  

20 mínútur eða svo

Slagurinn var ekki ýkja harður, laxinn var þreyttur á dauðu vatni nærri bakka og fékk ekki mikið súrefni auk þess sem straumur varð honum ekki til mikillar hjálpar.  Það er hér sem hugtakið ,,venjulegt viðfangsefni" kemur til sögunnar.  Jafet náði reyndar ekki með annarri hönd um stirtluna svo það var smá bras í löndum auk þess sem málbandið gaf sig, þeir mældu 98 sm fram að tálknbörðum og síðan hafa menn áætlað heildarlengd út frá myndum.  

,,Sumir segja 118 sm" segir veiðimaðurinn sem heldur sig við 115, en það eru 29 pund samkvæmt stöðlum.  Á spjallrásum heimta menn að hífa laxinn yfir 30 pund en Ásgeir segist ekki hafa neina þörf fyrir það. Hann segist þakklátur veiðifélögum á svæðinu fyrir að hafa ,,grisjað fyrir sig smálaxinn á Hornflúð" en þar tóku Hilmar Hansson og co tvo laxa í kringum 90 sm!

Svakalegt

,,Það er eitthvað svakalegt að gerast hérna" segir hann um væntingar í Aðaldalnum.  Reyndar ekki mikið komið af smálaxi sem er smá áhyggjuefni en yfir landið er Ásgeir Heiðar ákaflega bjartsýnn og er einn af þeim sem heldur að eins árs laxarnir sem ekki skiluðu sér í fyrra séu hugsanlega að koma núna.  

 

18.10.2013

Mýs og laxar

21.8.2013

Flottur úr Jöklu

6.7.2013

Ofurlax

7.6.2013

Fiskiteljarinn

5.6.2013

Blanda moldá

30.5.2013

Hrun og ögurstund

17.5.2013

Zonkerinn og Za

13.5.2013

Enn ein hlussan

29.4.2013

Hetjur uppskera

19.4.2013

Stórlax í net

29.3.2013

Ég hlakka til

22.2.2013

Margra núlla menn

11.1.2013

Trixin í Laxá