Stangveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir árlegri hreinsun á Elliðaánum í dag, þriðjudaginn 13. júní. Félagsmenn í SVFR og annað áhugafólk um Elliðaárnar mæta í veiðihúsið í Elliðaárdal klukkan 17. Gert er ráð fyrir að hreinsun verði lokið um kl. 20.00, en þá verður boðið upp á létta hressingu við veiðihúsið fyrir þá sem vilja.
Við veiðihúsið sem flestir kannast við, verður verkefnum útdeilt og mönnum og konum verða falin hreinsun á tilteknum hlutum Elliðaánna, en víða er að finna rusl og annan óþrifnað í og með ánum og er verkefni dagsins að gera umhverfi ánna eins snyrtilegt og kostur er og SVFR til sóma í hvívetna.
Þátttakendur eru hvattir til þess að vera í klofstígvélum eða vöðlum, þar sem hirða þarf rusl úr árfarveginum og jafnframt að vera klæddir í samræmi við veður að öðru leyti.
Undanfarin ár hafa margir hlýtt kalli SVFR um að leggja hönd á plóg við þetta tækifæri og hafa ekki séð eftir því. Enda er það almannarómur að þeir sem taka þátt í þessu átaki hafi ekki borið skarðan hlut frá borði í veiði í Elliðaánum í framhaldinu, enda eru það staðkunnugir menn sem fara fyrir hreinsunarflokkunum og miðla gjarnan af visku sinni og reynslu við þetta tækifæri, segir í tilkynningu frá félaginu.