Urriðafoss, nýja veiðisvæðið í Þjórsá, heldur áfram að gefa afskaplega vel. Svæðið er ekki lengur í efsta sæti á lista Landssambands veiðifélaga, heldur í því þriðja með 365 laxa.
Urriðafoss, nýja veiðisvæðið í Þjórsá, heldur áfram að gefa afskaplega vel. Svæðið er ekki lengur í efsta sæti á lista Landssambands veiðifélaga, heldur í því þriðja með 365 laxa. Þar er hins vegar einungis veitt á tvær stangir sem iðulega hafa náð dagskvótanum vel fyrir hádegi. Það hefur verið haft á orði að stemningin við Urriðafoss sé eins og í myndinni um Stellu í orlofi, eitthvað í líkingu við myndina sem fylgir þessari færslu!
Þegar þetta veiðisvæði er borið saman við önnur verður að hafa í huga að síðasta rúma hálfa mánuðinn hefur eingöngu verið veitt í þrjá daga á svæðinu, þá daga sem neta bænda eru ekki ánni. Nánar verður fjallað um laxveiðina og rýnt í tölur í Flugufréttum sem berast áskrifendum í fyrramálið.
-þgg