
Stangaveiðifélögin sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu sunnudaginn 24. ágúst næstkomandi. Þetta eru Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík. Eins og sjá má af myndinni geta þær orðið vel vænar í vatninu!
Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því. Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 um kvöldið. Leyfilegt agn er fluga og spónn.