
Fluguveiðimenn iða nú í skinninu að komast til veiða enda bara fimm dagar þangað til vertíðin hefst. Við spáum í spilin í Flugufréttum vikunnar, fáum ítarlega lýsingu á Brúarstreng í Langadalsá, skoðum flugurnar hjá Sidda Árna, kíkum til Ármanna þar sem var húsfyllir á Veiðivatnakynningu og birtum myndir frá Rise-fluguveiðihátíðinni sem haldin var í gær. Á myndinni er Halldór Gunnarsson með glæsilegan 73ja sm birting úr Varmá í apríl í fyrra.