
Eins og stöku sinnum áður var bræla á miðunum við upphaf vertíðar. Í Flugufréttum vikunnar gerum við víðreist og birtum nýjustu fréttir úr Litluá, Steinsmýrarvötnum, Tungufljóti, Varmá og Vífó. Við fáum einnig frábæran hnýtingapistil frá Hrafni Ágústssyni, skoðum Strengina í Langá og heyrum hvað þau sem tóku við keflinu góða af Stefáni Jóni Hafstein hafa að segja fluguveiðifólki Íslands. Til hamingju með nýtt veiðisumar! Myndin er tekin við Steinsmýrarvötn í opnun og segir allt sem segja þarf.