Tíðrætt og ritað er um fámenna nýliðun í hópi stangaveiðimanna. Iðkendur sportsins eru að eldast og nýja kynslóðin er ekki að skila af sér jafn mörgum veiðimönnum og best væri á kosið. SVFR, Villimenn og Veiðihornið efna til viðburðar til að spyrna við fótum á morgun með Ungliðakvöldi SVFR. Blásið til veislu fyrir ungmenni í sportinu í húsnæði Stangaveiðifélagsins að Rafstöðvarvegi 14, Elliðaárdal. Allir eru velkomnir og konur jafnt sem karlar (stelpur og strákar) undir 25 ára eru hvattir til að mæta og hitta aðra veiðisjúka. Dagskrá hefst kl 19:30
Dagskrá kvöldsins er ansi áhugaverð:
-Nokkur vel valin orð frá SVFR - Brynjar Þór sölustjóri
-Ingimundur kynnir Veiðikortið sem verður á afslætti þetta kvöld
-Fulltrúi frá Veiðihorninu kynnir vörur sínar og þjónustu
-Kynning á Elliðaánni, frá vorveiði og fram á haust
-Happahylurinn verður á sínum stað, stúfullur af gleði. 200 kr miðinn hámark 5 miðar á mann
-Vinningar Happahylsins eru einmitt það sem þú þarft. Veiðivörur, Veiðikortið og Veiðileyfi
-Villimenn sýna frá veiðiferðum sínum
-Innritun í SVFR verður á sérstökum kjörum þetta kvöld.
Hlekkur á viðburð á Facebook: www.facebook.com/events/605967706862520/
Mynd við grein er af Facebook síðu Villimanna. Kíktu á síðuna þeirra og sjáðu hvað þeir eru að bralla: www.facebook.com/Villimenn/