2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
31.5.2020

Síðdegi við Syðradalsvatn - aðsent

 

 Flugan sem sagt er frá: Vatnskötturinn.  Við fáum þessa sögu senda að vestan og þykir æsileg.  Þökkum Þorleifi góðar sögur og myndir:

Orðrómur er um að síðustu daga hafi sést töluvert af bleikju í Syðradalsvatni í Bolungarvík, en ekki gengið vel að fá hana til að taka í þessum hita, sem nú er og þessu logni dag eftir dag. 

Sumarið hefur verið heitt og þurrt og sjáanlega lækkað nokkuð í vatninu miðað við það sem venja er.  Innri hluti vatnsins er mjög grunnur allt að 40-50 metra fram frá landi, nær vatnið manni vart í hné við þessar aðstæður.  Upp á þessar grynningar kemur bleikjan oft síðla dags eða á kvöldin og þá stundum í nokkru magni. 

Ég hef tekið eftir að hún heldur sig oft í tveimur torfum og sannreynt að í annarri er staðbundinn bleikjustofn, en í hinni er sjóbleikjan, sem oft hefur göngu sína í vatnið um og upp úr miðjum júní. 

Ekki var því láni að fagna að bleikjan væri komin upp á grunnið er ég óð þar fram um kvöldmatarleitið.  Því fór ég fljótlega út að svonefndri Selá, sem rennur í vatnið austanvert og er í raun aðeins góður lækur.  Ég kastaði nokkrum sinnum á þessu svæði og var aðeins var við smábleikju, sem allar fengu fararleyfi aftur í vatnið.  Þarna var félagsskapur góður ein 20-30 hross fylgdust vel með þessum manni er baðaði út öllum öngum án þess að sjáanlegur væri nokkur tilgangur með því.

    
Vettvangur sögunnar: Syðradalsvatn.

Eftir að hafa notið þessa félagsskapar rölti ég aftur til baka og var hæst í mér að koma mér bara heim aftur.  Er ég kom  að enda vatnsins mætti ég öldruðum hvítskeggjuðum veiðimanni og tókum við tal saman.  Hann sagðist vera gestkomandi í Bolungarvík og færi oft hér frameftir að leika sér með flugustöngina.  Hann hafði verið hér um morguninn og séð þá nokkuð af bleikju í vatninu, en hún væri ósköp treg til að taka.  Hins vegar væri eitthvað af bleikjunni komið upp í aðra ána sem rennur í vatnið innanvert.  Einhver hafið fengið þokkalega veiði þar kvöldið áður.  Við fórum að tala um hvað helst væri að bjóða bleikjunni og komumst að raun um að smáar flugur, púpur og kúluhausar væri sennilega það líklegasta.  Ég var vel aflögufær af þessu agni og deildi hluta þess með öldungnum. 

Þetta varð til þess að ég frestaði heimferð minni og rölti í átt að ánni, en sá gamli fór aftur á móti niður að vatni.  Ég stoppaði við veiðistað sem er stutt fyrir framan litla brú yfir ána og gerði mig kláran til að veiða andstreymis.  Ég hnýtti á dögunum úr latex eftirlíkingu af vatnsketti setti á gripinn lappir og litaði svo með tússpenna.  Þessa framleiðslu mína hnýtti ég nú á tauminn gekk frá tökuvaranum og óð út í miðja á nokkuð fyrir neðan brotið neðst við hylinn.  

Þegar ég var kominn út í ána hugsaði ég með mér að betra hefði nú verið að skoða hvort einhver fiskur væri í hylnum áður en ég færi að kasta, en nennti ekki til baka.  Ekki þarf að hafa mörg orð um það sem nú gerðist.  Fiskur var á í fyrsta kasti og öðru og þriðja og svo framvegis.  Hylurinn var bókstaflega fullur af bleikju, bæði sjóbleikju og vatnableikju og landaði ég þarna um þrjátíu fiskum á rúmum einum og hálfum tíma og missti nokkra þar að auki.  Ég sleppti öllum fiski er ekki náði góðu pundi og allri vatnableikju er ekki var þeim mun pattaralegri.  Á árbakkann hafði ég að lokum raðað einum sautján frábærum matfiskum. 

Á leiðinni niður að bíl mætti ég þeim gamla aftur.  Hann hafði einnig orðið var þótt ekki hafi hann lent í ævintýri eins og ég.  Um leið og við kvöddumst rétti ég honum eintök af vatnskettinum og varð honum að orði að best væri að bleyta þá í fyrramálið.

Hvernig hefði síðdegið  farið ef hinn aldraði veiðimaður hefði ekki orðið á vegi mínum, í þann mund er ég ætlaði heim?   Var hann þessa heims eða..? Eitthvað er víst um álfaborgir á þessum slóðum er mér sagt.

Þorleifur Pálsson,
Ísafirði.

12.11.2020

Stelpur veiða laxa

16.10.2020

Tímavélin

20.8.2020

Klinkhammer

17.8.2020

Helgarfréttir

15.8.2020

Tungsten örtúbur

10.8.2020

Fiskifréttir

4.8.2020

Viðtal við KK

24.7.2020

Laxveiði vikan

22.7.2020

Flugan Friggi

18.7.2020

Flugufréttir

26.6.2020

Veiðimynd dagsins

23.6.2020

Mundu veltikastið

21.6.2020

Flottar opnanir

17.6.2020

Veitt og sleppt

16.6.2020

Laxa opnanir

10.6.2020

Laxafréttir

19.5.2020

Sagan um Krókinn

6.5.2020

Dagur í Kjós

3.5.2020

Nýja Sjáland

28.4.2020

Norðan fréttir

24.3.2020

Vika í veiði