2026 - 2025 - 2024 - 2023 - 2022 - 2021 - 2020 - 2019 - 2018 - 2017 - 2016 - 2015 - 2014 - 2013 - 2012 - 2011 - 2010 - 2009 - 2008 - 2007
19.6.2018

Þokkaleg byrjun í Veiðivötnum

Það var ljómandi gott hljóðið í henni Bryndís í Veiðivötnum þegar Flugur heyrðu í henni í morgun, en veiði í vötnunum hófst í gær.
 
Veiðin var þokkaleg að sögn Bryndísar "en þess ber að geta að ég er ekki kominn með skýrslur frá veiðimönnum, þar gerist ekki fyrr en hollið er búið. Veðrið var sæmilegt, dálítið kalt og mistur í lofti, en þeir sem stóðu yfir þessu, veiddu alveg ágætlega. Það er ennþá há vatnsstaða í Litlasjó og menn verða því að pæla hvar best er að standa að veiðinni við vatnið þar til sjatnar í því," segir Brygndis.
 
Færðin uppeftir er ágæt. Bryndís segir að verið sé að hefla þarna efra og menn eru beðnir að fara að öllu með gát meðan á því stendur.
 

 

24.12.2018

Gleðileg Jól

23.11.2018

Kvenfólkið fundar