
Að lesa Flugufréttir er góð byrjun á baráttudegi verkalýðsins. Í þeim Flugufréttum sem áskrifendur fengu í pósthólfið sitt eldsnemma í morgun eru frásögur á af Þingvallavatni þar sem veiðimenn mölva klakann úr lykkjunum til þess að geta kastað fyrir stórurriðann sem á endanum tekur, vonandi.
Við sýnum einnig myndbönd sem sýna ferðir laxins í sjónum, þau eru fróðleg. Við skoðum grænjaxlinn, nýja flugu eftir Stefán Hjaltisted, veiðum stórlax með Ara Hermóði í Vitaðsgjafa í Laxá í Aðaldal og gluggum er stórmerkilega grein Árna Árnasonar um Hvammsvirkjun.